Flýtilyklar
Nýtt: Lágkolvetna flatkökur
Það er okkur sönn ánægja að kynna nýjung frá Gæðabakstri. Lágkolvetna flatkökur er nú hægt að fá í helstu matvöruverslunum landsins.
Vinsældir á lágkolvetnavörum hafa verið miklar á undanförnum árum. Þar sem Gæða lágkolvetnabrauðið okkar er eitt vinsælasta brauð landsins langaði okkur að þróa nýjung í flatkökum.
Við kynnum því til leiks Lágkolvetna flatkökur sem eru einstaklega góðar og hentar þeim sem aðhyllast lágkolvetna matarræði. Í flatkökunum eru 61% minna af kolvetnum en í hefðbundnum flatkökum, og því henta flatkökurnar einstaklega vel fyrir þá sem aðhyllast lágkolvetna lífstílnum.
Uppistaðan í flatkökunum er baunaprótein, möluð hörfræ, sólkjarnafræ og sesamfræ. Það gerir það að verkum að magn af kolvetnum er mun minna en í hefðbundnum flatkökum.
Lágkolvetna flatkökurnar:
- Innihalda 61% minna af kolvetnum
- Innihalda 23% prótein
- Vegan
- Trefjaríkar
- Án viðbætts sykurs
- 4,6g kolvetni í hverri köku
Lágkolvetna flatkökur fást nú í helstu matvöruverslunum landsins. Þú verður að smakka!