Brauðterta með eplum

Brauðterta með eplum
Brauðterta með eplum
  • Brauðtertubrauð - langskorið
  • Fylling
  • 1 3/4 dl. majones
  • 1 3/4 dl. sýrður rjómi
  • 1 -2 stór græn epli
  • 150 gr. skinka
  • 1/2 söxuð steinselja
  • 1 lítill hreinn rjómaostur + fínmalaður pipar
  • 1/2 sítróna

Byrjið á að skera brauðið til að máta lögun tertunnar. Smyrja síðan brauðið með smjöri og rjómaostinu, öll lögin - miðjulagið smurt báðu megin. Saxið skinkuna, skrælið eplin og skerið í teninga eða rífið þau. Kreistið smá sítrónusafa yfir eplin svo þau verði ekki svört og saxið steinseljuna. Hræra saman sýrða rjómanum og majonesinu og hinu blandinu síðan saman við. allt sett á milli brauðlaganna. Skreytið með ávöxtum, eplum og skinku.  


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is