Flýtilyklar
Heimsókn frá samtökum norskra matvælaframleiðenda
03.11.2014
Á föstudaginn síðastliðinn fengum við góða heimsókn í bakaríið okkar frá Samtökum norskra matvælaframleiðanda (NHO mat og drikke), 10 manna nefnd í matvælareglugerð (Food policy committee). Þau fengu leiðsögn um framleiðsluna okkar og smökkuðu meðal annars laufabrauð, flatkökur og fleiri íslenskar vörur.
Á myndinni eru einnig Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum Iðnaðarins, Vilhjálmur framkvæmdastjóri Gæðabaksturs og Lilja Rut gæðastjóri Gæðabaksturs.