NÝTT: Eldhúsbrauð

NÝTT: Eldhúsbrauð
Nýbakað Eldhúsbrauð

Það jafnast ekkert á við það að vakna á laugardagsmorgni og finna lyktina úr eldhúsinu af nýbökuðu brauði. Nýjasta viðbótin við brauðflóruna okkar er Eldhúsbrauð frá Ömmubakstri. Eldhúsbrauð verður bakað daglega og fæst í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Nafnið er skírskotun í eldhúsið hjá ömmu þegar ilmurinn af ristuðu brauði og heitum kaffibolla tók á móti þér. Eldhúsbrauðið er tilvalið fyrir alla í fjölskyldunni, stóra sem smáa. Brauðið er einstaklega mjúkt og gott brauð og í þokkabót inniheldur Eldhúsbrauð mikið magn af trefjum. Eldhúsbrauðið er tilvalið fyrir hina fullkomnu klúbbsamloku, fyrir þá sem vilja gott ristað brauð á laugardags morgni eða fyrir litlar hendur sem vilja mjúkt og gott brauð með smjöri og osti.

Gríptu með þér Eldhúsbrauð í næstu verslun ;) Þú getur skoðað innihaldslýsingu og fleira fróðlega um Eldhúsbrauðið með því að smella hér.

 Eldhúsbrauð frá Ömmubakstri


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is