Flýtilyklar
Rúlluterta með frísklegu rækjusalati
19.06.2014
- 1 rúllutertubrauð
- 500 gr. rækjur, gjarnan risarækjur
- 1/2 agúrka, söxuð smátt
- 1 1/2 dós sýrður rjómi
- 2 msk. ferskt dill
- 2 msk. sítrónusafi
- 2 msk. fersk mynta
- Tabasco sósa eftir smekk
Hrærið allt varlega saman og smyrjið salatinu á rúllutertubrauðið. Rúllið því upp og skreytið að vild. Gott er að láta tertuna standa í kæliskáp í a.m.k. klst. áður en hún er borin fram.