Rúlluterta með reyktum laxi og wasabi - rjóma

Rúlluterta með reyktum laxi og wasabi - rjóma
Rúlluterta með reyktum laxi og wasabi rjóma
  • 1 rúllutertubrauð
  • 200 gr mjúkur rjómaostur
  • 1 dós sýrður rjómi
  • Rjómi til að þynna með
  • Wasabi efrir smekk 
  • Stórt búnt fínsaxaður graslaukur
  • 400 gr reyktur lax
  • Salt og svartur pipar

Blandið rjómaosti og sýrðum rjóma saman og þynnið í heppilega þykkt með rjómanum. Smakkið til með wasabi, salti og pipar. Smyrjið kreminu á rúllutertubrauðið, en skiljið smávegis eftir til að skreyta með. Stráið fínsöxuðum graslauk yfir kremið. Skerið reykta laxinn í þunnar sneiðar og raðið yfir brauðið. Rúllið upp og smyrjið rúlluna að utan með kreminu sem eftir var og dreifið fínsöxuðum graslauk eða öðrum kryddjurtum yfir.


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is