Blóðbergssalt eða sykrað kaffi á laufabrauðið?

Blóðbergssalt eða sykrað kaffi á laufabrauðið?
Lúxus laufabrauð

Nú er hægt að fá Lúxus laufabrauð með íslensku garðablóðbergssalti frá Vestfjörðum. “Þessi tegund er einstaklega góð, þó ég segi sjálfur frá, og gefur laufabrauðinu einstakt bragð,” segir Gísi Þorsteinsson sölustjóri Gæðabaksturs sem framleiðir Lúxus laufabrauðin.

Ostasósa og ídýfa á laufabrauðið

Lúxus laufabrauðið er steikt laufabrauð sem er aðeins framleitt fyrir jólahátíðina en þrátt fyrir að laufabrauðið komi aðeins á tilteknum tíma á hverju ári hefur smekkur fólks breyst og þróast þegar það er borðað. “Við sjáum sífellt fleiri sem kjósa annars konar bragð og álegg á laufabrauð en áður og Lúxus laufabrauðið er vitanlega svar við þeirri fjölbreytni. Margir kjósa það eintómt eða með smjöri en við sjáum líka að fólk velur hangikjöt, ost, mysing, brauðsalat og sultu ofan á laufabrauðið. Þá vitum við til þess að fólk sé að setja sykrað kaffi á laufabrauðið, maís, saltaða rúllupylsu, ídýfur og ostasósu, svo dæmi séu tekin.”

Þá segir Gísli: “Það eru ekki neinar fastar reglur hvernig á að snæða laufabrauðið og við teljum að það sé mikilvægast að láta ímyndunaraflið ráða og njóta þess á sem fjölbreyttasta máta. Sumir snæða líka laufabrauð á Þorranum, sem er bara hið besta mál.”


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is