Bolludagur 2017 - Pantaðu á netinu

Bolludagur 2017 - Pantaðu á netinu
Bolludagur 2017

Bolludagurinn er ávallt skemmtilegasti dagur ársins hjá okkur. Bolludagurinn 2017 er mánudaginn 27 febrúar. Nú getur þú pantað bollurnar á netinu á www.bolludagur.is og fengið sendar gómsætar og þitt fólk.

Við sendum frítt til þín ef þú pantar 30 bollur eða fleiri (aðeins á höfuðborgarsvæðinu). Pantaðu núna fyrir 16 febrúar og fáðu auka 5% afslátt.

Afslættir eru veittir skv. pöntunarmagni og þá má sjá hér að neðan.

Bolludagsafslættir

 

Bollurnar sem Gæðabakstur/Ömmubakstur bíður upp á eru eftirfarandi:

 vatnsdeigsbolla með súkkulaði - Bolludagur

Vatnsdeigsbolla með súkkulaði, rjóma og sultu
Vinsælasta bollan á hverju ári er vatnsdeigsbolla með súkkulaðiglassúr, rjóma og sultu. Klikkar seint og yfirleitt ganga allir sáttir frá borði eftir eina svona.

 Vatndeigsbolla með karamellu - Bolludagur

Vatnsdeigsbolla með karamellu og karamellurjóma
Fyrir karamelluelskendur er þessi bolla eina vitið. Fyllt með karamellurjóma og toppuð með karamelluglassúr. 

 Gerbolla með súkkulaði - Bolludagur

Gerbolla með súkkulaði, rjóma og sultu
Gerbollan er ávallt klassísk með súkkulaði, rjóma og sultu. 

 Gerbolla með púns - Bolludagur

Gerbolla með púns
Þessi er svo sannarlega fyrir lengra komna. Fyllt með romm púnsrjóma og stráð með flórsykri. Þessi er svona fullorðins.

Á bolludagshelginni er svo sannarlega líf og fjör hjá okkur þar sem mikið gengur á. Við leggjum okkur fram við að bjóða eins nýjar og ferskar bollur og hægt er. Þessvegna velur þú afhendingartíma sem hentar þér því þá færðu þær eins ferskar og kostur er. 

Kíktu inn á www.bolludagur.is og pantaðu bollur fyrir þig og þitt fyrirtæki strax í dag. 

Bolla! Bolla!


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is