HÚH! Hamborgarabrauð

Áfram Ísland!

Það er ekki á hverjum degi sem það gerist að Ísland kemst á heimsmeistaramótið í fótbolta. Strákarnir okkar spila sinn fyrsta leik gegn Argentínu á laugardaginn og við erum svo sannarlega klár. Í samstarfi við Norðlenska höfum við unnið hörðum höndum að því að útbúa alvöru hamborgara sem eru tilbúnir á grillið, þó þannig að einhver fótboltabragur væri yfir þeim. 

Því var brugðið á það ráð að brennimerkja hamborgarabrauðin með orðinu "HÚH" eins og svo frægt er orðið. Gæðabakstur fór því á stúfana og lét útbúa fyrir sig sérstakt járn sem nær sjóðandi hita og brennimerkir brauðin. Niðurstaðan urðu þessi glæsilegu "HÚH" hamborgarabrauð .

Huh brauð fyrir ísland

Fyrir hvern leik bíður Krónan upp á hamborgarapakka í þema þess liðs sem Ísland keppir á móti. Fyrsti pakkinn inniheldur:

2x 175g hamborgarar (með Argentísku kryddi)
2x HUH hamborgarabrauð
2x Cheddar ostasneiðar
1x Argentísk Chimichurry sósa 

Huh brauð fyrir ísland

Þetta er einfaldlega of gott. Og við hvetjum þig til að næla þér í þennan glæsilega pakka, enda verður hann aðeins til í takmörkuðu magni.

Huh brauð fyrir ísland

Huh brauð fyrir ísland

HM borgari

Og svona lítur pakkinn út


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is