Neyðarlínan 112 vann morgunverðarpakka!

Neyðarlínan 112 vann morgunverðarpakka!
Starsfmenn 112 fengu flottan föstudagsglaðning

Við hjá Gæðabakstri / Ömmubakstri erum svo sannarlega í miklu jólaskapi og erum að gefa og gefa. Nýverið settum við af stað Jólaleik Ömmubaksturs sem snýst um að skrá sig og sína vinnufélaga eða stórfjölskyldu. Í vinning er svo glæsilegur morgunverður með ýmsu bakkelsi og sætabrauði fyrir allan hópinn. Við ætlum að gefa morgunverðarpakka í hverri viku fram að jólum ;) Skráðu þig og þinn hóp með því að smella hér.

Í þessari viku drógum við út Neyðarlínuna 112. Neyðarlínan sinnir því ótrúlega mikilvæga hlutverki að veita neyðarþjónustu fyrir okkur landsmenn. Stuðla þar með að því að mannslífum sé bjargað og umhverfi, eignir og mannvirki séu varin jafnframt sem dregið er úr afleiðingum slysa og náttúruhamfara. 

Það var nefnilega hún Hjördís, starfsmaður neyðarlínunnar, sem skráði sig og neyðarlínuna í pottinn. Við komum á staðinn og settum upp glæsilegan morgunverð með rúnstykkjum, kleinuhringjum, langa jón, flatkökur, skonsur, laufabrauð osfrv. Í pakkanum var voru líka djúsar frá Ölgerðinni og jólaostar frá MS. Hjördís kom sínum vinnufélögum svo sannarlega á óvart og allir mjög glaðir ;)

Neyðarlínan með bakkelsi

Við óskum þeim innilega til hamingju og þökkum einnig kærlega fyrir að fá að koma í heimsókn og skoða starfsemina.


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is