Nýtt: Ömmu súkkulaðikleinur

Nýtt: Ömmu súkkulaðikleinur
Súkkulaðikleinur með ískaldri mjólk!

Við kynnum með stolti Ömmu súkkulaðikleinur. Við hjá Ömmubakstri settum gömlu góðu kleinuna í sparifötin aftur eftir 15 ára fjarveru. Kleinurnar eru súkkulaðihjúpaðar og einstaklega mjúkar að innan. Súkkulaðikleina með ískaldri mjólk er síðan ótrúlega góð samsetning eða súkkulaðikleina með rjúkandi kaffibolli. Betra getur það hreinlega ekki verið. Tilvalið er að taka þessar gómsætu súkkulaðikleinur með sér í ferðalagið, í bústaðinn eða á morgunverðarhlaðborðið í sumar. 

Á næstu vikum verðum við á ferðinni í verslunum að gefa súkkulaðikleinur og mjólk ;)

Gaman er að segja frá því að súkkulaðikleinur voru eitt sinn framleiddar af Ömmubakstri fyrir um það bil 10-12 árum. Í dag förum við aftur í tímann og endurvekjum þessa gómsætu vöru. Enda kominn tími til!

Hægt er að sérpanta kleinurnar í stykkjatali í öllum stærðum fyrir viðburði, veitingasölur, mötuneyti og fyrirtæki. Hægt er að sérpanta í síma 545-7000

Efirfarandi verslanir selja Ömmu súkkulaðikleinur:

Bónus súkkulaðikleinur

Krónan logo

Súkkulaðikleinur í Fjarðarkaup

Hagkaup Logo

 

Ömmustrákurinn Súkkulaðikleina

Gríptu með þér súkkulaðikleinur í sumar!


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is