NÝTT: Kleinukoddar

NÝTT: Kleinukoddar
Kleinukoddar henta við öll tilefni

Má bjóða þér kodda?

Á hverjum degi förum við Gæðabakstri/Ömmubakstri í algjöra kleinu. Og framleiðum mörg þúsund kleinur á hverjum degi. Í svolítinn tíma höfum við gert eitthvað sem við köllum kleinukoddar. En þá hefur það aðallega verið í boði á ráðstefnum og fjöldasamkomum . 

Kleinukoddar eru bragðgóðir eins og kleinur. En það sem þeir hafa fram yfir kleinuna er að þeir eru dúnamjúkir og aðeins tveir munnbitar. Það getur nefninlega verið heilmikil skuldbinding að fá sér eina stóra kleinu. Og því er frábært að geta snarlað aðeins á kleinukoddum.

Þeir eru því frábærir við öll tilefni.

  • Í ferðalagið
  • Í veisluna
  • á kaffiborðið
  • í tjaldútileguna

Það er okkur sannur heiður að kynna þennan nýja meðlim í kleinufjölskylduna. Kleinukoddar fást í öllum helstu verslunum landsins og eru í þokkabót á frábæru verði. 15 koddar í poka gerist varla betra.

Gangið hægt um gleðinnar dyr og ekki gleyma koddunum! 

Kleinukoddar góðir

Kleinukoddar með mjólk

 


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is