Sjóðheit flaueliskaka fyrir elskendur

Sjóðheit flaueliskaka fyrir elskendur
Red Velvet kaka

Valentínusardagurinn, sem er helgaður ástinni, er mánudaginn 14. febrúar.

Þann dag, sem nær aftur til 14. aldar í Evrópu, hafa elskendur sent hvort öðru gjafir á borð við blóm og konfekt, segir í Wikipedia ritinu. Þá hefur færst í vöxt í Bandaríkjunum að gefa kökur á þessum degi.

Dagurinn á sér ekki langa sögu á Íslandi en hefur orðið sífellt stærri með árunum. Þá taka gjafirnar breytingum og meðal nýjunga er þessi tveggja laga Valentínusarkaka, sem snillingarnir í Gæðabakstri hafa bakað. Hér er um að ræða svokallaða rauða flauelisköku (Red Velvet Cake), sem hefur slegið í gegn fyrir Valentínusardaginn í Bandaríkjunum. Flaueliskakan er með rjómaostakremi og með sérstaklega rauðleitum blæ.

Flaueliskakan er sannarlega kaka elskendanna í ár.

Kakan fæst í verslunum Krónunnar. 


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is