Flýtilyklar
Brauðterta með sjávarfyllingu
		
					19.06.2014			
			Uppskriftir
		
	- Ragnars Brauðtertubotnar
 - 6 hökkuð harðsoðin egg
 - 340 gr. rækjur
 - 100 gr. reyktur lax í teningum
 - 1 dl. sýrður rjómi
 - 100 gr. majones
 - 1/2 fínt hakkaður blaðlaukur
 - 1/2 dl. fínt klippt ferskt dill eða 1/2 tsk þurrkað
 - salt og pipar eftir smekk
 - Öllu blandað saman og sett á milli botnanna - 2 lög ( ef lögun tertunnar gerir hana stóra þarf að stækka fyllinguna) og skreytt með eftirfarandi:
 - 200 gr. majones
 - 1 dl. sýrður rjómi
 - 500 gr. rækja
 - 1-2 msk. rauður eða svartu kúlu-kavíar
 
Öllu blandað saman nema kavíarnum hann er hristur mjög varlega saman við í lokin annars springur hann.
Skreytt með t.d. með laxarósum, tómatrósum, gúrkuslaufum, rifnum sítrónu/appelsínuberki sem eru hitaðir með matarlit.
							
			
