Rúlluterta með fetaosti, hráskinku og klettasalati

Rúlluterta með fetaosti, hráskinku og klettasalati
Rúlluterta með fetaosti, hráskinku og klettasalati
  • 1 rúllutertubrauð
  • 200 gr mjúkur rjómaostur
  • 1 dós af sýrðum rjóma
  • 1/2 - 1 dós fetaostur
  • Rjómi til að þynna
  • 1 poki klettasalat
  • 1-2 bréf hráskinku
  • salt og svartur pipar

Blandið rjómaosti, sýrðum rjóma og fetaosti saman og þynnið í heppilega þykkt með rjómanum.

Smakkið til með salti og pipar. Smyrjið kreminu á rúllutertubrauðið, en skiljið smávegis eftir til að skreyta með. Grófsaxið klettasalatið og dreifið um helmingi af því yfir kremið. Leggið síðan hráskinkusneiðarnar yfir kremið og rúllið upp. Smyrjið rúlluna að utan með kreminu sem eftir var og dreifið klettasalati og svörtum pipar yfir.  


Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is