• Glútenfríar vörur

    Gæðabakstur hefur bakstur á glútenfríum vörum! Framleiðslan er í sérútbúnu húsnæði sem tryggir það að varan er 100% glútenfrí!

Glútenlausar vörur

Við erum stolt af því að vera fyrst á Íslandi til að geta boðið upp fersk glútenfrí brauð sem eru framleidd í sérstöku glútenlausu umhverfi. Þau eru gerð frá grunni og haldast því mjúk og góð. 

Glútenfrítt samlokubrauð

Eldfell er glútenlaust samlokubrauð sem inniheldur meðal annars hörfræ. Hörfræ eru rík af trefjum og Omega-3 fitusýrum, sem er lífsnauðsynlega fitusýra og mikilvægt að fá úr fæðunni. Eldfell inniheldur 3,2 g af trefjum í 100 g og er því góður trefjagjafi í daglegu fæði. Að auki er brauðið laust við alla algengustu ofnæmisvalda (s.s. glúten, mjólk, egg, hnetur og sesam) og hentar því vel fyrir alla sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir þessum fæðutegundum. Lestu innihald vörunnar hér.

Nafnið er dregið af Eldfjallinu á Heimaey í Vestmanneyjaklasanum. Gosið í Eldfelli árið 1973 byrjaði 23.janúar og lauk 3.júlí sama ár. Þetta eldgos er oftast kennt við Heimaeyjargosið.

Glútenfrítt sólkjarna rúgbrauð

Snæfell er glútenlaust sólkjarnarúgbrauð sem inniheldur meðal annars ríkt magn af sólkjarnafræjum (sólblómafræ). Sólkjarnafræ eru rík af Omega-6 fitusýrum, sem er lífsnauðsynleg og mikilvægt að fá úr fæðunni. Einnig innihalda þau mikið af trefjum, og eru góð uppspretta B-vítamína og E-vítamíns. Snæfell inniheldur 4,1 g af trefjum í 100 g og er því góður trefjagjafi í daglegu fæði. Að auki er brauðið laust við alla algengustu ofnæmisvalda (s.s. glúten, mjólk, egg, hnetur og sesam) og hentar því vel fyrir alla sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir þessum fæðutegundum. Lestu innihald vörunnar hér.

Nafnið er dregið fjallinu Snæfell og er hæsta fjall Íslands utan Jökla. Snæfell er fornt eldfjall og er um 1833m yfir sjó. 

.

Gæðabakstur íslensk framleiðslaVið framleiðum 100% glútenlausar vörur. Vörurnar eru framleiddar í sérútbúnu húsnæði með ítarlegar verklagsreglur, þar sem bannað er að meðhöndla glúten og kemur í veg fyrir kross-smit. Ekkert glúten kemst í snertingu við vöruna og að auki er framleiðslan bæði hnetu- og sesamlaus. Fyllsta öryggis er einnig gætt við meðhöndlun á mjólk og eggjum, þannig að ekkert kross-smitist við framleiðslu. Glútenlausu vörurnar henta því einnig þeim sem hafa ofnæmi fyrir þessum fæðutegundum.

Krónulogo
Fjarðarkauplogo

Hagkaup Logo

Víðir logo

  • Glúten og Seliakóþolssamtökin

    Við erum afar stolt af því að hafa unnið þessar vörur með Seliak og glútenóþolssamtökin á Íslandi. Þau hafa verið einstaklega hjálpsöm og hafa hjálpað mikið við þróun á þessari einstöku vöru.

    Meginmarkmið samtakanna er að fræða og styðja við einstaklinga og fjölskyldur þeirra sem hafa verið og eru nýgreindir með Seliak sjúkdóminn og glútenóþol. Einnig að gera yfirvöld, framleiðendur og innflytjendur matvæla, skólakerfið og almenning meðvitaðari um alvarleika Seliak sjúkdómsins og glútenóþols til jafns við önnur fæðuofnæmi.

    Með því að vinna með þeim fyrirtækjum sem framleiða eða flytja inn matvæli má stuðla að auknu framboði á sérfæðisvörum, bæta þýðingar og merkingar á umbúðum og síðast en ekki síst að tryggja nægjanlegt fæðuframboð og fjölbreytni.


    Seliak og Glúten óþolssamtökin

     

Svæði

Gæðabakstur \ Ömmubakstur ehf.

Lynghálsi 7 \ 110 Reykjavík | Sími: 545 7000 \ Neyðarnúmer: 858 0310 \ kt: 550595-2499 \ Vsk.nr. 49516 | gaedabakstur@gaedabakstur.is